Reykvíkingar, gætum okkar hagsmuna á Alþingi

grunnskolar_haustLaugardaginn 24. nóvember n.k. er prófkjör Sjálfstæðisflokksins vegna komandi Alþingiskosninga og höfundur þessa greinarkorns er meðal frambóðenda.  Reykvíkingum gefst tækifæri til að velja þingmannsefni til að halda á málefnum höfuðborgarinnar og landsins alls næstu ár. Það skiptir máli að velja af kostgæfni og yfirvegun.

Verulega hefur skort á að hagsmunum Reykvíkinga sé nægilega vel gætt á Alþingi. Þeir tiltölulega fáu þingmenn sem þéttbýlið hefur verða að beita sér betur fyrir sína kjósendur. Það er eins og fulltrúar þéttbýlisins koðni niður þegar þeir koma á þing og allir verða vinir á kaffistofunni. Meirihlutinn, þ.e. landbyggðin ræður mestu. Ekki fulltrúar meirihluta þjóðarinnar á SV horninu. Það heyrist helst frá þéttbýlis þingmönnum rétt fyrir kosningar. Þá allt í einu dúkka þeir upp í fjölmiðlum á hverjum degi.

Að sjálfsögðu er landið allt ein heild og þéttbýli og landsbyggð þarf að vinna vel saman. En þegar litið er yfir síðustu áratugi sést greinilega hvað hallað hefur á hagsmuni skattgreiðenda og neytenda á SV horninu.

Hér á eftir eru nokkrir liðir þar sem hagsmuna okkar á SV horninu hefur ekki verið nægilega vel gætt:

Við þurfum lágt matvælaverð og fjölbreytt matvæli. Það eru strangar innflutningshömlur á landbúnaðarafurðum og það sem leyft er að flytja inn er sumt ofurskattað til að vernda íslenska framleiðslu.

Við þurfum stöðuga mynt og lága vexti á skuldir okkar. Heimilin berjast nú við ógnvænlegann skuldavanda meðal annars vegna verðtryggðra lána. Nærri 30.000 okkar eru á vanskilaskrá og tugir þúsunda til viðbótar hafa glatað eigin fé í sínum fasteignum og sjá fram á stökkbreytt lán og afborganir næstu áratugi. Landinu er haldið utan við ESB og Evruna til að vernda landbúnaðinn og sjávarútveginn sem að vísu er á misskilningi byggt og á ekki að gera með þeim hætti sem gert hefur verið.

Við sitjum uppi með einn dýrasta landbúnað í heimi án þess að hafa efni á því. Varðandi sjávarútveginn er útlit fyrir að samingar um hann verði þess eðlis að við getum vel við unað, en það er að sjáfsögðu úrslita atriði. Það felast líka mikil tækifæri í því fyrir landbúnaðinn og sjávarútveginn að við göngum í ESB. Stóru sjávarútvegsfyrirtækin munu því ekki andvíg. Við kunnum sjávarútveg ágætlega og getum vaxið erlendis ef tækifærin væru opnari.

Við sitjum uppi með að vera áhrifalaus í EES en taka samt við regluverkinu.

Við sitjum uppi með ónýta krónu sem er ekki gjaldgeng, en það er meginhlutverk gjaldmiðla að vera gjaldgengir og halda verðgildi sínu. Óstöðugleiki krónunnar leiddi til þess að verðtrygging var tekin upp sem núna hefur gert tugi þúsunda Íslendinga eignalausa og ofur skuldsetta. Vextir í krónunni eru óbærilegir sem drepur niður fyrirtæki og heimili. Við þurfum Evruna, trausta alþjóðlega gjaldgenga mynt, sem heldur verðgildi sínu sæmilega. Með Evrunni kemur stöðugleiki, lág verðbólga og lágir vextir.

Við þurfum lægri skatta. Skattar eru orðnir það háir að það kemur hart niður á fólki og fyrirtækjum. Ofurskattarnir eru hamlandi fyrir vöxt fyrirtækja og minnka það sem heimili og fyrirtæki hafa til ráðstöfunar. Hluti skattanna gengur frá þéttbýlinu á SV horninu út á land til landbúnaðar, samgangna og fleira. Það er eðlilegt að vissu marki, en það hefur verið gengið allt of langt í því efni. Við þurfum að taka á óráðsíunni og lækka svo skattana.

Við þurfum góð atvinnutækifæri sem greiða góð laun. Með inngöngnu í ESB og tilkomu Evrunnar myndu nýju útflutnings atvinnugreinarnar svo sem Marel, Össur, Actavis að ógleymdri ferðamannaþjónustu vaxa hraðar og dafna í stað þess að flýja land.

Með því að taka á landbúnaðaróráðsíunni, ganga í ESB og taka upp Evruna myndi ráðstöfunarfé heimila í þéttbýlinu aukast um 50 til 100 kr. á mánuði þegar fram í sækir, en það tekur tíma að koma fram. Það þarf raunhæfari lausnir það nægir ekki að segjast bara vilja lækka skatta. Það þarf að segja hvernig það á að gerast.

Kjósendur ættu að huga að verulegri endurnýjun fulltrúa á Alþingi og velja til starfa víðsýnt, frjálslynt, öflugt fólk af báðum kynjum. Ekki láta stórar og miklar auglýsingar glepja sig í því efni. Ekki kjósa bara frægt og ríkt fólk þó það geti verið ágætt. Huga að mannkostum, menntun, reynslu og málefnum frambjóðenda. Reykvíkingar, þið eigið leikinn á laugardag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband